
9. september 2026 - 16. desember 2026
Verð: 93.500 kr.
Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa í félags og heilbrigðisþjónustu og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 10 eininga á framhaldsskólastigi.
Markmið:
Auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum skjólstæðinga til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi skjólstæðinga og starfsfólks.
Námsþættir:
Skilningur á starfsemi í félags og heilbrigðisþjónustu, að vinna að lausnum og undir álagi, fjömenningarfærni, vellíðan, smitvarnir, iðja og iðjuþjálfun, umönnun, frumkvæði, gæðavitund og skjólstæðingnn í brennidepli.
Námsmat:
Byggist á verkefnaskilum, virkri þátttöku og 80% mætingarskyld.
Kennslufyrirkomulag:
Kennt er í fjarnámi á TEAMS og í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 3. hæð. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00, auk staðlota einn laugardag í mánuði.
Námið er alls 210 klukkustundir og fer fram á íslensku. Boðið er upp á stoðtíma einu sinni í viku á ensku og spænsku. Hægt er að hlusta á upptökur kennslustunda eftir á, en þá þarf að skila ígrundun og verkefni um efni tímans.
Stefán E. Hafsteinsson iðjuþjálfi og Torfi Jónsson sálfræðingur kenna ásamt fleiri gestakennurnum.
Engin lokapróf eru í náminu en lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður.
Tími:
Námið hefst 9. september og lýkur 16. desember 2026
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar veita Nanna Bára og Hólmfríður, í síma 421-7500 eða á namskeid@mss.is
Styrkir vegna skólagjalda:
Minnum á styrki starfsmenntasjóða stéttafélaga.
Námið er án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar. Skráning fer fram á heimasíðu Starfsmenntar.
Einnig greiðir stéttarfélagið Efling námið að fullu fyrir sína félagsmenn.
Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar.