Skref fyrir skref – Menntagrunnur

Skref fyrir skref – Menntagrunnur er nýtt og einstaklingsmiðað námsúrræði sem hefst hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum haustið 2025. Námið er ætlað ungu fólki af erlendum uppruna (18–24 ára) sem vill sækja sér frekara nám eða auka möguleika sína á vinnumarkaði.

Námið byggir á samþættingu þriggja námskráa og einstaklingsmiðaðrar íslenskukennslu. Námsfærni þátttakenda er mismunandi. Sumir þátttakendur kunna hvorki að lesa né skrifa á íslensku, eða jafnvel á sínu móðurmáli, og er því rík áhersla á persónulega íslenskukennslu. Í upphafi náms verða því haldin stöðupróf í íslensku.

Markmið námsleiðar er að:

  • efla sjálfstraust, félagsfærni og grunnfærni þátttakenda
  • gera þátttakendur meðvitaða um ríkjandi viðmið, reglur og samskiptavenjur sem einkenna íslenskt skólasamfélag
  • auka færni þátttakenda í íslensku, lestri, námstækni, ritun, stærðfræði, upplýsingatækni og lífsleikni
  • mæta þátttakendum á eigin forsendum og veita þeim stuðning í öruggu námsumhverfi með það með það að markmiði að þeir geti haldið áfram námi eða komist út á vinnumarkað

Kennslufyrirkomulag og skipulag náms

Kennslan fer fram í litlum hópum í húsnæði MSS. Lögð er áhersla á heimastofu og persónulegt nám þar sem þátttakendur hafa greiðan aðgang að kennurum, námsráðgjöfum og stuðningsaðilum.

Námið spannar eina önn og verður kennsla alla virka daga frá 08:30-14:30, fyrir utan föstudaga þá er kennsla frá 08:30-11:50. Námsleiðin hefst mánudaginn 01. september og lýkur með útskrift miðvikudaginn 17. desember.

Verð á námsleiðinni Hámarksverð er 194.000 kr. en mun ráðast af því hvort þátttakandi muni þurfa að taka námsleiðina í heild sinni eða hluta námsleiðar. Niðurstöður í stöðuprófi úr íslenskunni mun ákvarða upphæð námsleiðar.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Linda <linda@mss.is> og Kristín <kristin@mss.is> í síma 421-7500

Verð: 194.000
Tímabil: 1. september - 17. desember

Sækja um
Skref fyrir skref – Menntagrunnur