Matreiðslunámskeið

Á matreiðslunámskeiði Fullorðinsfræðslu fatlaðs fólks verður kennt að elda einfalda og bragðgóða rétti sem hitta í mark. Unnið er eftir myndrænum og skrifuðum uppskriftum og munnlegum fyrirmælum eftir þörfum þátttakenda. Kennt verður í kennslueldhúsi Fjölbrautaskóla Suðurnesja á annarri hæð og eru nemendur hvattir til þess að koma með eigin svuntur til að nota á námskeiðinu. 


Ingibjörg Valdís Bolladóttir sér um námskeiðið og hámarksfjöldi þátttakenda er sex. 


Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 16-18 og námskeiðið hefst 12. apríl og því lýkur 3. maí.

 

Verð: 6000 kr. 

 

Nánari upplýsingar veitir Jón Pétursson í síma 848-2436 eða í tölvupósti á netfangið jonkp87@gmail.com


Verð: 6.000
Tímabil: 12. apríl - 3. maí

Sækja um
Matreiðslunámskeið