Starfsréttindanámskeið dagforeldra

Starfsréttindanámskeið dagforeldra

22. september 2026 - 23. október 2026

Sækja um

Verð: 130.680 kr.

Um námskeiðið

Námskeiðið undirbýr þátttakendur fyrir starf dagforeldris, þar sem börn eru vistuð í heimahúsi á dagvinnutíma í atvinnuskyni. Fjallað er um þær kröfur sem gerðar eru til dagforeldra, aðbúnað barna, öryggismál og ábyrgð í starfi.

Einnig er farið yfir umsóknarferlið fyrir rekstrarleyfi hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV), ásamt helstu skilyrðum og fylgigögnum sem þurfa að liggja til grundvallar umsókn. Að námskeiði loknu er það GEV sem metur umsókn og veitir starfsleyfi. Námskeiðið er eitt af skilyrðum fyrir veitingu leyfis til daggæslu barna í heimahúsi.

Námið er alls 70 kennslustundir og fer fram á íslensku.


Námsþættir:

  • Málþroski og málörvun barna
  • Uppeldi sem virkar
  • Heilsa, vellíðan og næring barna
  • Brunavarnir og slys á börnum
  • Sérþarfir og umönnun
  • Útivist og náttúra
  • Barnaverndarmál
  • Færni til framtíðar
  • Samskipti og samvinna
  • Vinnusiðferði
  • Sjálfsstyrking


Námsmat:

Verkefnaskil, kannanir og virk þátttaka (símat).


Kennslufyrirkomulag:

Kennsla fer fram í fjarnámi á TEAMS og í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 3. hæð.

Kennsla er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00 – 20:30, auk tveggja laugardaga.


Skyldumæting er í staðlotum:

Brunavarnir: kl. 9:00 – 12:00

Öryggismál og skyndihjálp: kl. 9:00 – 16:00

*Dagsetningar laugardaga verða staðfestar í lok ágúst.

Hægt er að nálgast upptökur af kennslustundum, en þá þarf að skila ígrundun og verkefni um efni tímans.


Tími:

Námið hefst 22. september og lýkur 23. október 2026


Nánari upplýsingar veitir:

Hólmfríður - Netfang: namskeid@mss.is - Sími 421-7500


Styrkir vegna skólagjalda:

Minnum á styrki starfsmenntasjóða stéttafélaga.

Atvinnuleitendur geta leitað til VMST

Athugið einnnig að sveitarfélög geta veitt endurgreiðslu. Þátttakendur þurfa sjálfir að sækja um og vera með virka umsókn sem verðandi dagforeldri.

Ekki gleyma að kanna þinn rétt.


Verð og upplýsingar á námskeiðum eru birt með fyrirvara um breytingar