Matreiðslunámskeið
Á matreiðslunámskeiði Fullorðinsfræðslu fatlaðs fólks verður kennt að elda einfalda og bragðgóða rétti sem hitta í mark. Unnið er eftir myndrænum og skrifuðum uppskriftum og munnlegum fyrirmælum eftir þörfum þátttakenda. Kennt verður í kennslueldhúsi Akurskóla í Innri-Njarðvík.
Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 16:00-18:00.
Staðsetning : Akurskóli í Innri Njarðvík
Námskeiðið hefst 4. febrúar og lýkur 11. mars.
Verð: 6000 kr.
Kennari: Sigurður Björgvinsson
Verð: 6.000
Tímabil: 4. febrúar - 11. mars