Lífeyrismál og starfslok

Lífeyrismál og starfslok

29. september 2026 - 29. september 2026

Sækja um

Verð: 19.900 kr.

Um námskeiðið

Á þessu ítarlega og gagnlega námskeiði er farið yfir helstu atriði sem snúa að lífeyrismálum og fjármálahlið starfsloka. Námskeiðið hentar öllum sem vilja bæta þekkingu sína á lífeyrismálum, sem og þeim sem starfa við að aðstoða lífeyrisþega. Námskeiðið stendur öllum til boða, en efnið er sérstaklega sniðið að einstaklingum 55 ára og eldri.  


Ávinningur þátttakenda:

Þátttakendur öðlast betri yfirsýn yfir réttindi sín og þá valkosti sem í boði eru. Bætt þekking dregur úr líkum á kostnaðarsömum mistökum og gefur færi á að hámarka virði lífeyris og réttinda.


Efnistök eru: 

  • Hvenær og hvernig hentar að sækja lífeyrisgreiðslur?
  • Hvernig göngum við á séreignarsparnað og hvaða áhrif hefur tilgreind séreign?
  • Hvað þarf að vita varðandi greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar?
  • Er skynsamlegt að sækja hálfan lífeyri?
  • Hvernig deili ég lífeyri með makanum mínum?
  • Hvaða skatta kem ég til með að greiða?


Leiðbeinandi:

Björn Berg sem hefur haldið hundruð fyrirlestra og námskeiða um fjármál hjá fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og skólum.


Tími- og staðsetning:

Þriðjudaginn 29. september 2026 kl. 17:00 – 20:00. Námskeiðið mun fara fram í húsnæði MSS, Krossmóa 4a, 3.hæð.


Styrkir vegna námskeiðsgjalda:

Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiðsgjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga. 

Ekki gleyma að kanna þinn rétt.


Nánari upplýsingar veita:

Díana Karen og Hólmfríður - Netfang: tomstundanamskeid@mss.is - Sími: 421 - 7500.


Verð og upplýsingar á námskeiðum eru birt með fyrirvara um breytingar