Sýnatökunámskeið
Sýnatökunámskeið
Á námskeiðinu er fjallað um helstu blóðtökukerfi sem notuð eru við sýnatöku, þar á meðal Becton Dickinson, Vacuette og Sarstedt. Lögð er áhersla á undirstöðuatriði í sýnatökuferlinu, mikilvægi réttrar glasa röðunar og þá þætti sem geta haft áhrif á gæði sýna. Meðal annars verður farið yfir áhættuþætti tengda framkvæmd sýnatöku og skoðað hvernig slík atriði geta haft áhrif á niðurstöður. Einnig verður rætt um rauðkornarof, helstu orsakir þess og leiðir til að draga úr líkum á því til að stuðla að áreiðanlegri mælingum. Þá verður kynnt hvaða gagnlegar upplýsingar má nálgast í Þjónustuhandbók Landspítala.
Leiðbeinendur:
Erla Bragadóttir, lífeindafræðingur og kennslustjóri á Rannsóknarkjarna LSH
Edda Ásgerður Skúladóttir, lífeindafræðingur á Rannsóknarkjarna LSH
Námsmat:
100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Dagsetning og tími:
Þriðjudaginn 28. apríl kl. 17-22
Námskeiðið er 5 klukkustundir og gefur 6 punkta til sjúkraliða.
Verð: 22.000