Hagnýtar gervigreindarlausnir
Vertu með í gervigreindarbyltingunni?
Lærðu að nota gervigreind á hagnýtan og öruggan hátt án þess að týnast í endalausum möguleikum.
Þetta er tveggja daga, verklegt námskeið sem byggir upp sjálfstraust og sjálfstæði í notkun gervigreindar. Þú færð skýra undirstöðu í gervigreindarlæsi og lærir að beita gervigreind í fjölbreyttum verkefnum í starfi og daglegu lífi.
Kennt er fyrst og fremst á ChatGPT en þekkingin yfirfærist auðveldlega yfir á Copilot, Gemini, Claude og aðrar spunagreindarlausnir.
Skráning á námskeiðið fer fram hjá Endurmenntun
Styrkleikar námskeiðsins:
- Kennsla frá raunverulegum sérfræðingum sem vinna við að innleiða gervigreindarlausnir í fyrirtæki.
- Lærir spunagreindarlæsi: eftir námskeiðið munt þú skilja tæknina betur, hverjar takmarkanirnar eru og hvernig þú stýrir henni á öruggan hátt.
- Blandað fyrirkomulag: fyrirlestrar og æfingar til skiptis, með nægum tíma fyrir spurningar og aðstoð.
- Reglulegar uppfærslur á námsefni í takt við þróun gervigreindarinnar.
Dagur 1 — Grunnur og samskipti við gervigreind
- ChatGPT frá grunni: viðmót, stillingar og lykilhugtök.
- Gervigreindarlæsi, takmarkanir og gæðamat: hverju á að treysta, hvað þarf að sannreyna.
- Hugsunarlíkön og samskipti: hvernig á að fá betri niðurstöður.
- Fjölbreytt sýnidæmi og æfingar.
Dagur 2 — Tól, gögn og verkefnavinna
- Notkun helstu tóla ChatGPT: myndrænt efni, rödd og vinna með skjöl.
- Greining og framsetning gagna.
- Verklag í stærri verkefnum: upplýsingaöflun, skipulag og samvinna tóla.
- Verkefni sem krefjast notkunar margra tóla.
Þú lærir að nota ChatGPT í starfi og einkalífi. Lærir á helstu tól til að vinna með texta, gögn og myndrænt efni. Lærir að nota gervigreind án þess að vera í vafa um hvað má m.t.t. persónuverndar og gagnaöryggis. Skilur hvernig þú færð sem mest út úr gervigreindinni.
Nánar um kennara:
Sverrir Heiðar Davíðsson er hugbúnaðarverkfræðingur og annar stofnandi Javelin AI, M.Sc. í gervigreind og gagnavísindum (DTU) með yfir 7 ár af reynslu með gervigreind.
Pétur Már Sigurðsson, sérfræðingur innleiðingar gervigreindarlausna hjá Javelin AI. Hann hefur yfir 7 ára reynslu af hugbúnaðarþróun og hefur hannað og forritað gervigreindarlausnir í 4 ár.
ATH Skráning fer fram hjá Endurmenntun
Verð: 69.900
Tímabil: 21. apríl - 22. apríl