Sykursýki og næring

Sykursýki og næring

3. nóvember 2026 - 5. nóvember 2026

Sækja um

Verð: 34.500 kr.

Um námskeiðið

Á námskeiðinu er fjallað um mismunandi tegundir sykursýki og hvernig næring og mataræði gegna lykilhlutverki í meðferð og vellíðan einstaklinga með sjúkdóminn. Lögð er áhersla á helstu atriði í mataræði eftir tegund sykursýki, með tilliti til þátta eins og lyfjameðferðar, aldurs, lífsstíls og einstaklingsbundinna þarfa.

Námskeiðið veitir bæði fræðilega og hagnýta þekkingu sem nýtist þeim sem starfa á heilbrigðis- og velferðarsviði, sem og öðrum sem vilja auka skilning sinn á tengslum sykursýki og næringar.


Leiðbeinandi

Óla Kallý Magnúsdóttir, næringarfræðingur á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og doktor í næringarfræði.


Námsmat:

100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.


Tími og staðsetning:

Þriðjudaginn 3. nóvember og fimmtudaginn 5. nóvember 2026 kl. 17:00 - 21:00. Námskeiðið mun fara fram í húsnæði MSS, Krossmóa 4a, 3. hæð.


Námskeiðið er 8 klukkustundir og gefur 10 punkta til sjúkraliða. 


Styrkir vegna námskeiðsgjalda:

Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiðsgjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.

Ekki gleyma að kanna þinn rétt.


Nánari upplýsingar veita:

Jóhanna María og Hólmfríður - Netfang: namskeid@mss.is - Sími 421-7500.


Verð og upplýsingar á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar