Viðspyrna - Aðlögun og uppbygging eftir veikindi

Viðspyrna - Aðlögun og uppbygging eftir veikindi

27. október 2026 - 29. október 2026

Sækja um

Verð: 50.000 kr.

Um námskeiðið

Viðspyrna – Aðlögun og uppbygging eftir heilsufarsbreytingar er námskeið um sálfélagsleg áhrif langvinnra heilsufarsbreytinga og hvernig hægt er að styðja einstaklinga í að takast á við breyttar aðstæður, streitu og skerðingu á virkni. 


Markmið:

Á námskeiðinu er fjallað um tengsl hugsana, tilfinninga, streitu og hegðunar, auk þess sem farið er yfir hagnýtar leiðir til að efla jafnvægi, seiglu og bjargráð í daglegu lífi.

Námskeiðið nýtist fagfólki í heilbrigðis- og velferðarþjónustu sem vill dýpka skilning sinn á reynslu einstaklinga með langvinn einkenni og efla færni í stuðningi, samskiptum og hvatningu í bata- og aðlögunarferli.


Leiðbeinandi:

Torfi Már Jónsson er sálfræðingur hjá Sálfræðinetinu og sinnir m.a. ráðgjöf og meðferð fyrir einstaklinga í starfsendurhæfingu vegna heilsufarsbreytinga. Hann hefur reynslu úr störfum hjá Geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS), auk starfsnáms á Landspítala og Reykjalundi. Einnig hefur hann starfað innan félags- og velferðarþjónustu sem deildarstjóri í búsetukjörnum.

Í starfi sínu nýtir hann meðal annars hugræna atferlismeðferð (HAM) og samþykkis- og skuldbindingarmeðferð (ACT) til að styðja einstaklinga við að aðlagast breyttum aðstæðum, efla seiglu og finna aukið jafnvægi í kjölfar heilsufarsbreytinga.


Námsmat:

100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.


Tími og staðsetning:

Þriðjudaginn 27. október og fimmtudaginn 29. október 2026 frá kl. 17:00 – 21:00. Námskeiðið mun fara fram í húsnæði MSS, Krossmóa 4a, 3. hæð.


Námskeiðið er 8 klukkustundir og gefur 10 punkta til sjúkraliða. 


Styrkir vegna námskeiðsgjalda:

Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiðsgjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.

Ekki gleyma að kanna þinn rétt.


Nánari upplýsingar veita:

Jóhanna María og Hólmfríður - Netfang: namskeid@mss.is - Sími 421-7500.


Verð og upplýsingar á námsleiðum eru birt með fyrirvara um breytingar