Hjúkrun sjúklinga við lok lífs - líknar- og lífslokameðferð

Hjúkrun sjúklinga við lok lífs - líknar- og lífslokameðferð

24. nóvember 2026 - 26. nóvember 2026

Sækja um

Verð: 28.900 kr.

Um námskeiðið

Á námskeiðinu er fjallað um ýmsa þætti í hjúkrun sjúklinga og fjölskyldna þeirra á síðustu mánuðum og vikum lífs. Farið er meðal annars yfir mat og meðferð einkenna, stuðning og samskipti. 

Áhersla er lögð á að þátttakendur taki virkan þátt í námskeiðinu og nýti þannig reynslu sína og þekkingu til umræðu og ígrundunar.


Leiðbeinandi:

Svandís Íris Hálfdánardóttir, sérfræðingur í líknarhjúkrun Líknardeild LSH.


Námsmat:    

100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.


Tími og staðsetning:

Þriðjudaginn 24. nóvember og fimmtudaginn 26. nóvember 2026 frá kl. 13:00 – 17:00. Námskeiðið fer fram í húsnæði MSS, Krossmóa 4a, 3. hæð.  


Námskeiðið er 8 klukkustundir og veitir 10 punkta til sjúkraliða.


Styrkir vegna námskeiðsgjalda:

Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiðsgjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.

Ekki gleyma að kanna þinn rétt.


Nánari upplýsingar veita:

Jóhanna María og Hólmfríður - Netfang: namskeid@mss.is - Sími 421-7500


Verð og upplýsingar á námsleiðum eru birt með fyrirvara um breytingar