Spurning dagsins - Bættu gagnrýna hugsun fyrir líf og starf

Spurning dagsins - Bættu gagnrýna hugsun fyrir líf og starf

21. september 2026 - 28. september 2026

Sækja um

Verð: 29.000 kr.

Um námskeiðið

Verklegt námskeið sem byggir á meginreglum heimspekilegrar samræðu til að efla gagnrýna hugsun, samræðuhæfni og faglega ígrundun. Fáðu hagnýt verkfæri til að móta skýrari spurningar, dýpka samskipti og nota skrif sem árangursríka leið til að greina áskoranir í starfi. Þetta námskeið er hannað til að styrkja þína faglega þróun og er því styrkhæft af fræðslusjóðum stéttarfélaga.


Ávinningur:

Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að geta:

●    Mótað skýrari, opnar spurningar til að leysa vandamál

●    Aukið faglega samræðuhæfni og greint ólíkar gerðir samtala

●    Tekið þátt í dýpri samtölum sem efla skilning og samvinnu

●    Nýtt Spurning dagsins: Árstíðir hugans til faglegrar ígrundunar og sjálfsþekkingar

●    Notað stuttar dagbókarfærslur til að dýpka pælingar um líf og starf


Kennari:

Hrannar Baldursson er höfundur bókarinnar Spurning dagsins: Árstíðir hugans. Hann hefur víðtæka reynslu af kennslu í heimspekilegri samræðu fyrir ólíka hópa. Hrannar hefur meðal annars starfað sem verkefnastjóri hjá MSS, sérfræðingur hjá Fræðslumiðlun atvinnulífsins og er nú verkefnisstjóri hjá Kennslumiðstöð Háskóla Íslands.


Tíma- og staðsetning:

Námskeiðið mun fara fram í húsnæði MSS, Krossmóa 4a 3.hæð, mánudaginn 21.sep., þriðjudaginn 22.sep. og mánudaginn 28.september 2026 frá klukkan 17:00 – 20:00


Styrkir vegna námskeiðsgjalda:

Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiðsgjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga. 

Ekki gleyma að kanna þinn rétt.


Nánari upplýsingar veitir:

Hólmfríður - namskeid@mss.is - sími 421-7500


Verð og upplýsingar á námskeiðum er birt með fyrirvara um breytingar