
Á námskeiðinu er fjallað um hinsegin heilbrigði og mikilvægi þess að heilbrigðisþjónusta taki mið af fjölbreytileika notenda. Lögð er áhersla á hvernig aðstaða, orðræða og fræðsla geta stuðlað að betri þjónustu og auknu öryggi hinsegin einstaklinga.
Hinsegin fólk er hluti af öllum þeim hópum sem leita í heilbrigðisþjónustu og því er mikilvægt að starfsfólk búi yfir þekkingu og færni til að mæta þeim af virðingu og fagmennsku. Fjallað er um hvernig skapa má aðstæður sem styðja við traust og jafnræði í þjónustu.
Einnig er horft til hlutverks heilbrigðiskerfisins í að stuðla að jafnræði og samfélagslegri viðurkenningu hinsegin fólks, með það að markmiði að tryggja að allir fái þjónustu sem tekur mið af þeirra þörfum og reynslu.
Námsmat:
100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Leiðbeinandi:
Sigurður Ýmir Sigurjónsson, hjúkrunarfræðingur hjá Samtökunum ´78.
Tími og staðsetning:
Fimmtudaginn 20. ágúst 2026 kl. 17:00 - 21:00. Námskeiðið mun fara fram í húsnæði MSS, Krossmóa 4a, 3.hæð.
Námskeiðið er 5 klukkustundir og gefur 6 punkta til sjúkraliða.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna María og Hólmfríður - Netfang: namskeid@mss.is - Sími: 421-7500
Styrkir vegna námskeiðsgjalda:
Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiðsgjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga og atvinnuleitendur geta leitað til VMST.
Ekki gleyma að kanna þinn rétt.
Verð og upplýsingar um námskeið eru birt með fyrirvara um breytingar.