
18. ágúst 2026 - 24. ágúst 2026
Verð: 28.500 kr.
Gervigreind fyrir innflytjendur er hagnýtt sex klukkustunda námskeið þar sem þátttakendur læra að nota gervigreind sem vegvísi í íslensku samfélagi. Farið er yfir grunnatriði gervigreindar, hvernig á að spyrja betri spurninga, stilla gervigreindartól þannig að svör verði gagnlegri og hvernig má greina á milli traustra upplýsinga og rangra eða óljósra svara.
Á námskeiðinu vinna þátttakendur með raunhæf dæmi úr daglegu lífi, svo sem að skilja opinberar upplýsingar, undirbúa samtöl við stofnanir, læra íslensk orð, þýða og einfalda texta, undirbúa atvinnuviðtöl og finna réttar heimildir. Glærur og verkefni verða bæði á íslensku og ensku, þannig að þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að læra mikilvæg íslensk hugtök og orð sem tengjast daglegu lífi, vinnu og samfélagsþátttöku.
Sérstök áhersla er lögð á gagnrýna hugsun, persónuvernd og örugga notkun. Þátttakendur læra að nota gervigreind sem hjálpartæki. Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að geta notað gervigreind til að undirbúa sig betur, spyrja skýrari spurninga, læra íslensku á hagnýtan hátt og rata betur um íslenskt samfélag
Kennari:
Stefán Hafsteinsson er iðjuþjálfi, ráðgjafi og kennari með B.Sc. í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri og MS í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Stefán hefur sjálfur verið innflytjandi og nýtt sér verkfæri AI til aðstoðar.
Tími og staðsetning:
Kennt verður dagana 18., 20. og 24. ágúst frá kl.13:00 - 15:00 í fjarnámi.
Nánari upplýsingar veitir:
Nanna Bára - nanna@mss.is eða namskeid@mss.is - sími 421-7500
Verð og upplýsingar á námskeiðum er birt með fyrirvara um breytingar.