
Frá starfsmanni til leiðtoga er hagnýtt og hnitmiðað námskeið fyrir fólk sem vill efla sig í starfi, taka meiri ábyrgð og undirbúa sig fyrir framtíðarhlutverk sem leiðtogi. Námskeiðið er ekki hugsað sem langt eða fræðilegt stjórnendanám, heldur sem praktísk verkfærakista fyrir fólk sem vill skilja betur hvernig góðir leiðtogar hugsa, skipuleggja, eiga samskipti og fylgja verkefnum eftir.
Áhersla er lögð á einföld verkfæri úr stjórnun, þjónandi forystu, samskiptum, gæðavinnu, verkefnastjórnun og Agile-hugsun. Þátttakendur vinna með raunveruleg dæmi úr eigin starfsumhverfi og velja eitt lítið umbótaverkefni sem þeir geta haft áhrif á.
Leiðbeinandi:
Stefán Hafsteinsson iðjuþjálfi, ráðgjafi og kennari með B.Sc. í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri og MS í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Tími og staðsetning:
Námið hefst 5. október og lýkur 3. nóvember 2026.
Kennt er á Teams á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00 - 19:00.
Styrkir vegna skólagjalda:
Hægt er að sækja um styrk vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Ekki gleyma að kanna þinn rétt.
Nánari upplýsingar veitir:
Nanna Bára - Netfang: nanna@mss.is / namskeid@mss.is - Sími 421-7500
Verð og upplýsingar á námskeiðum eru birt með fyrirvara um breytingar.