Bráðahjálp fullorðinna fyrir sjúkraliða

Bráðahjálp fullorðinna fyrir sjúkraliða

22. september 2026 - 22. september 2026

Sækja um

Verð: 39.000 kr.

Um námskeiðið

Á námskeiðinu er fjallað um grunnþætti í bráðahjálp fullorðinna með áherslu á hlutverk sjúkraliða í bráðum aðstæðum. Lögð er áhersla á örugg og markviss viðbrögð, bæði í tali og verki, þegar líf og heilsa eru í húfi.


Farið er yfir endurlífgun fullorðinna með verklegum æfingum og fræðslu, auk þess sem þátttakendur þjálfast í að greina einkenni og bregðast við algengum bráðatilfellum. Þar má nefna hjartaáfall, bráðaofnæmi, yfirskömmtun ópíóíða, heilablóðfall og blóðsykursfall.

Áhersla er lögð á að efla öryggi í vinnubrögðum, auka sjálfstraust í viðbrögðum og styrkja færni til að taka þátt í fyrstu viðbrögðum þar til frekari hjálp berst. Markmiðið er að þátttakendur geti brugðist hratt, rétt og faglega við bráðum aðstæðum í starfi.


Leiðbeinendur: Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir læknir á bráðamóttöku og Haukur Smári Hlynsson svæfingahjúkrunarfræðingur. Þau eru bæði starfsfólk Bráðaskólans.


Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.


Tíma- og staðsetning: Fimmtudaginn 22. september kl. 17:00 - 22:00. Námskeiðið mun fara fram í húsnæði MSS - Krossmóa 4a, 3. hæð.



Námskeiðið er 5 klukkustundir og gefur 6 punkta til sjúkraliða. 

 

Nánari upplýsingar veita:

Jóhanna María og Hólmfríður - namskeid@mss.is - sími 421-7500



Verð og upplýsingar á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar