
Starfstengt íslenskunámskeið fyrir erlent starfsfólk
Viltu efla íslenskukunnáttu erlends starfsfólks og styrkja það í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsfólk?
MSS býður fyrirtækjum í ferðaþjónustu upp á starfstengt íslenskunámskeið fyrir erlent starfsfólk sem sinnir framlínustörfum. Námskeiðið er á stigi A1.2 - A2.1 (íslenska 2-3) og er ætlað starfsfólki sem þegar hefur grunnþekkingu í íslensku.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta íslensku sem nýtist beint í starfi. Kennslan er aðlöguð að þörfum fyrirtækisins og þeim störfum sem þátttakendur sinna.
Helstu áherslur
Kennslufyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi og hægt er að skipuleggja kennsluna í kringum starfsemi fyrirtækisins. Miðað er við kennslu tvisvar í viku, til dæmis í tengslum við hádegis- eða kaffitíma starfsfólks.
Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að tölvu, spjaldtölvu eða sambærilegu tæki til að taka þátt í kennslunni.
Fjöldi kennslustunda og tímasetningar eru ákveðin í samráði við fyrirtækið og umfang námskeiðsins er aðlagað að þörfum hópsins.
Verð
Verð er samkomulagsatriði og fer eftir umfangi námskeiðsins og fjölda kennslustunda.
Nánari upplýsingar
Kristín Hjartardóttir
kristin@mss.is
421-7500