Raunfærnimat

Raunfærnimat er ferli þar sem metin er þekking og færni á ákveðnu sviði, svo sem reynsla af starfi, námi eða félagsstörfum. 

Fyrir hverja er raunfærnimat?

Ertu með góða starfsreynslu, orðin/n 23 ára og með amk. 3 ára starfsreynslu í faginu? Þá gæti raunfærnimat verið fyrir þig.

MSS hefur boðið upp á raunfærnimat í eftirfarandi starfsgreinum:


Almenn starfshæfni

Með almennri starfshæfni er verið að meta persónulega hæfni sem er mikilvæg á vinnumarkaði og er sameiginleg flestum störfum.

Viðkomandi mátar sig saman við fyrirfram skilgreinda hæfni sem skiptir máli á vinnumarkaði. Fær þannig gott yfirlit um stöðu sína og styrkleika. Jafnframt þá þætti sem þarf að efla og þannig styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Raunfærnimat í almennri starfshæfni er hæfni sem einstaklingurinn þarf að búa yfir eða tileinka sér til þess að taka á virkan hátt þátt í samfélaginu, vera á vinnumarkaði, þróast í starfi og geta tekið á sig meira krefjandi störf.

Eftir matið fær einstaklingurinn niðurstöður sem sýnir hvar hæfni hans liggur. Þannig fær hann skýra sýn á styrkleika sína og í framhaldi hvaða hæfni megi styrkja. Þá fær hann einnig umsögn frá matsaðila sem byggir á niðurstöðum og frammistöðu þátttakanda í ferli matsins. Niðurstöður eru eign einstaklingsins og getur hann notað þær t.d. til að lýsa hæfni sinni í ferilskrá eða atvinnuviðtali.

Matartæknir

Matartæknar starfar við matreiðslu og stjórnun í eldhúsum heilbrigðisstofnana, leik-, grunn- og framhaldsskóla og mötuneytum vinnustaða. Matartæknir matreiðir og setur saman matseðla fyrir almennt fæði og sérfæði. Matartæknir vinnur með hreinsiefni sem notuð eru í stóreldhúsum og mötuneytum við hreinsun m.a. tækja og áhalda og hefur eftirlit með slíkum þrifum í samræmi við gildandi staðla og reglur um hreinlæti. Metið er inn í Matartæknanám en að því loknu fær Matartæknir réttindi til starfa með leyfisbréfi frá Embætti landlæknis. 

Þjónustugreinar

Raunfærnimat í þjónustugreinum nær til ófaglærðs starfsfólks sem starfar á leikskólum, grunnskólum eða við félagslega þjónustu svo sem umönnun aldraðra og fatlaðra. Metið er inn á leikskólaliðabraut, stuðningsfulltrúabraut og félagsliðabraut.

Iðngreinar

MSS veitir upplýsingar og aðstoðar einstaklinga í raunfærnimati í öllum iðngreinum.
Matið er unnið í samstarfi við Iðuna Fræðslusetur og misjafnt er hvaða verkefni eru í gangi.
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér málið og hafa samband við náms- og starfsráðgjafa MSS.

Frekari upplýsingar um raunfærnimat veita: 

Steinunn Björk Jónatansdóttir í síma 412 5940 / steinunn@mss.is
Inga Sif Ingimundardóttir
í síma 412-5958 / inga@mss.is

Staðfesting á færni er gefin út í lok ferlisins. 

Markmið:

  • Að geta stytt nám í framhaldi af matinu
  • Að sýna fram á reynslu og færni Að leggja mat á hvernig einstaklingur getur
    styrkt sig í námi eða starfi

Eftir matið er hægt að taka ákvörðun um að:

  • Klára það sem vantar uppá til að ljúka námi
  • Nýta matið sem stökkpall í annað nám
  • Nýta matið til að skoða hvar þú ert staddur/stödd 

Hér má horfa á kynningarmyndband um raunfærnimat