Fjármálanámskeið
Markmið námskeiðsins er að kenna einstaklingum notkun á vinnutækjum sem nýtast þegar breyta á bágri fjárhagsstöðu í góða. Gert er ráð fyrir að þátttakendur noti þessi tæki á meðan á námskeiðinu stendur til að endurskoða eigin fjármál.
Boðið er upp á fjármálarágjöf fyrir þátttakendur sem eru í fjárhagsvanda eða hafa áhyggjur af fjármálum sínum. Fjárhagsvandi getur haft mikil áhrif á líf einstaklings og þar með framgang endurhæfingar. Vandinn er fundinn, möguleg lausn og aðgerðaáætlun gerð.
Lagt er til að einstaklingur sitji námskeiðið Úr skuldum í jafnvægi áður en hann fer í einstaklingsviðtöl.
Námskeiðið er 12 kennslustundir og kennt á nokkrum vikum.