Verkur sterkur: verkjanámskeið
Farið er yfir almenna fræðslu um langvarandi verki, verkjastjórnun og bakslagsvarnir. Þátttakendur á námskeiðinu fá æfingar til að sinna á milli tíma ásamt því að fá fleiri æfingar við lok námskeiðs til að sinna áfram og viðhalda þeirri þekkingu og kunnáttu sem þau öðlast til að takast betur á við bakslög í framtíðinni.
Námskeiðið er 10 kennslustundir