8. janúar 2026
Fare Green - Green education empowering communities

MSS tekur nú þátt í verkefni sem ber heitið Fare Green - Green education empowering communities. Samstarfsaðilar verkefnisins vinna að því að þróa sérsniðna rafræna fræðslu fyrir smærri ferðaþjónustufyrirtæki í norrænum samfélögum. Áhersla er á sjálfbæra ferðaþjónustu, hringrásarhagkerfi og þróun nærsamfélaga. Verkefnið er fjármagnað af þátttökuaðilum og NORA (Nordic Atlantic Cooperation) sem er stofnun sem starfar innan Norrænu ráðherranefndarinnar.
Samstarfshópurinn samanstendur af fjórum rótgrónum aðilum á sviði starfsmenntunar og símenntunar frá Íslandi, Noregi og Kanada, auk eigenda tveggja lítilla fyrirtækja annars vegar frá Færeyjum og hins frá Íslandi.
-
Fagskolen Rogaland – Stavanger, Noregi
-
Fagskulen Vestland – Bergen, Noregi
-
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum – Reykjanesbær, Íslandi
-
Niagara College – Niagara, Kanada
-
Go Local – Mykines, Færeyjum
-
EMZ – Reykjanesbær, Íslandi
Verkefnið miðar að því að:
-
Búa til sérsniðna fræðslu og þjálfun fyrir smærri ferðaþjónustufyrirtæki
-
Veita tækifæri til tengslamyndunar
-
Þróa opinn stafrænan vettvang fyrir miðlun þekkingar
- Efla smærri samfélög með fræðslu á sviði ferðaþjónustu.
-
Stuðla að menningarvitund og verndun menningararfs
-
Efla efnahagslega þróun með sjálfbærri ferðaþjónustu
Vinna við verkefnið er vel á veg komin og erum við nú að hefja vinnu á ári tvö en verkefnið er til þriggja ára.
Hér má fræðast betur um verkefnið og fylgjast með framvindu þess:
Heimasíða - faregreen.org
