
Ef þig vantar ráðgjöf varðandi starfsendurhæfingu er Aníta reiðubúin að aðstoða. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt með sérstakan áhuga á geðheilbrigði og vellíðan. Aníta er einstaklega hlýleg í viðmóti og býr yfir góðri nærveru. Hún veitir þátttakendum Samvinnu ráðgjöf, stuðning og markvissa eftirfylgd. Að auki kemur hún að fræðslu eftir þörfum, bæði um heilsutengd málefni, geðheilbrigði og sjálfsstyrkingu.
B.Sc. í hjúkrunarfræðum.