
Náms- og starfsráðgjafi / Deildarstjóri
Steinunn sinnir náms- og starfsráðgjöf, kennslu á námskeiðum og fjölbreyttum verkefnum tengdum fræðslu og ráðgjöf. Hún leggur áherslu á að styðja fólk við að koma auga á styrkleika sína, efla trú á eigin getu og taka næstu skref í námi eða starfi, meðal annars með stuðningi við raunfærnimat og starfsleit.
Sérstakt áhugasvið Steinunnar er sjálfstyrking, námstækni og starfsleitarhæfni. Hún veitir einstaklingum stuðning við að setja sér markmið, byggja upp sjálfstraust og finna leiðir sem henta þeirra aðstæðum og framtíðarsýn. Með ráðgjöf sinni leitast hún við að efla færni fólks til að nýta reynslu sína, styrkleika og möguleika á vinnumarkaði.
B.A. í uppeldis- og menntunarfræði og M.A. í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands.