22. október 2010

Menntastoðir - Fjarnám

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum býður upp á fjarnám í Menntastoðum á vorönn 2011. Fjarnámið er unnið í samstarfi símenntunarmiðstöðva víðsvegar um landið og gerir því öllum landsmönnum kleift að taka meirihluta námsins í sinni heimabyggð.

Hvað eru Menntastoðir?
Menntastoðir er undirbúningsnám fyrir þá sem hyggja á nám í Háskólabrú Keilis en vantar tilskylinn einingarfjölda til að fá inngöngu. Kennd eru kjarnafögin; stærðfræði, íslenska, enska, danska og námstækni.

Kennslufyrirkomulag
Námið er 10 mánaða langt sem byggir á einni helgarlotu í mánuði þar sem nemendur mæta í tíma. Kennslufyrirkomulagið verður með þeim hætti að teknar verða 6 helgarlotur fram í júní og verða tvær kenndar í Reykjanesbæ en hinar 4 kenndar með fjarfundarbúnaði inn á símenntunarmiðstöðvar um landið. Sumarfrí er frá júní fram í ágúst en þá hefst seinni önnin með sama fyrirkomulagi.

Kennslutími
Kennt verður á föstudögum og laugardögum frá 9:00 -17:00 en í þeim lotum sem teknar verða í Reykjanesbæ er kenndur hálfur sunnudagur til viðbótar. Allt efni sem kennt er í gegnum fjarfundarbúnað verður tekið upp og verður aðgengilegt inni á netinu til áhorfs seinna ásamt öllu öðru kennsluefni. Þriðjudaga og fimmtudaga verður sett inn nýtt kennsluefni á netið sem nemendur vinna með heima.

Námið hefst föstudaginn 7 janúar og lýkur með útskrift í janúar 2012 og geta nemendur innritað sig þá beint í fjarnám í Háskólabrú Keilis sem hefst í janúar 2012. Námið kostar 110.000 kr

Skráning fer fram á  www.keilir.net  og er umsóknarfrestur til 10. desember 2010. MSS býður jafnframt upp á staðnám og dreifinám í Menntastoðum eins og undanfarin ár.

Nánari upplýsingar má nálgast hér eða hafa samband við Hjörleif Þór Hannesson hjá MSS í síma 421 7500.

Til baka í fréttir