18. mars 2013
Menntastoðir - Opið fyrir umsóknir!
Menntastoðir haustönn 2013 - opið fyrir umsóknir!
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Menntastoðir haustönn 2013.
Námið er hugsað sem undirbúningur til áframhaldandi náms og miðar við háskólabrú Keilis og frumgreinadeildir við Bifröst, Háskólann á Akureyri og H.R. Einnig má nýta einingar úr Menntastoðum inn í nám í framhaldsskóla og sem grunn fyrir iðnnám.
Helstu námsgreinar eru íslenska, stærðfræði, enska, danska, námstækni, sjálfstyrking, tölvu- og upplýsingatækni og bókfærsla.
Helstu námsgreinar eru íslenska, stærðfræði, enska, danska, námstækni, sjálfstyrking, tölvu- og upplýsingatækni og bókfærsla.
Boðið er uppá þrjár leiðir í ágúst 2013:
Staðnám 1:
55 einingum lokið á 6 mánuðum. Kennt er fimm daga vikunnar frá kl. 08:30 til 15:10.
Staðnám 2:
12 mánuðir/tvær annir: Kennd eru 4 fög (26 einingar) á fyrri önn og 3 fög (29 einingar) á seinni önn. skv. stundaskrá staðnámshóps.
Dreifinám:
10 mánaða langt nám sem kennt er einu sinni í viku og tvo laugardaga í mánuði.

Frekari upplýsinga veitir Særún Rósa Ástþórsdóttir í síma 412 5952 eða í gegnum netfangið saerun@mss.is.