Grunnmennt - Almennur bóklegur undirbúningur
Grunnmennt er ætlað fólki, 18 ára og eldri, sem vill styrkja sig í kjarnagreinunum (íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku) og undirbúa sig undir frekara nám. Í náminu er auk þess lögð áhersla á mikilvæga námsþætti fyrir daglegt líf og störf, svo sem námstækni, sjálfstyrkingu, samskipti og tölvu- og upplýsingatækni. Námið hentar vel fólki sem er með stutta formlega skólagöngu að baki, ekki verið lengi í námi, vill fara rólega af stað og fá góðan stuðning, hvatningu og leiðsögn frá upphafi.
Námið er 300 kennslustundir og er kennt alla virka daga frá klukkan 08:30 – 12:15. Engin hefðbundin lokapróf eru en lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat, t.d. verkefnavinna, kannanir, hópavinna, umræður og rökræður. Hægt er að meta námið allt upp að 15 einingum.