Nemendur sem stunda nám í fagnámi í félags- og heilbrigðisþjónustu eru að mestu í fjarnámi en koma saman hér í MSS í staðlotu einu sinni í mánuði. Síðastliðinn laugardag hittust þau í tíma hjá Stefáni Hafsteinssyni, iðjuþjálfa.
Um er að ræða mjög samheldinn og öflugan hóp þar sem flestir þátttakendur starfa við umönnun samhliða náminu. Námið fer fram á íslensku en jafnframt er boðið upp á stoðtíma á ensku og spænsku einu sinni í viku til að styðja við fjölbreyttan hóp nemenda.
Í staðlotunum er lögð áhersla á bæði verklega þjálfun og umræðu þar sem þátttakendur deila reynslu sinni og efla færni sem nýtist beint í starfi.
Það hefur verið afar ánægjulegt að sjá samheldnina í hópnum og hversu vel þau styðja hvert annað í náminu.
Við hlökkum til að taka á móti nýjum nemendum í þetta nám í haust og hvetjum áhugasama til að kynna sér námið frekar með því að smella