Uppbygging í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu á Suðurnesjum hefur verið umtalsverð síðustu árin og á sama tíma hefur þörfin á aðgengilega og hagnýta símenntun í heimabyggð orðið mun skýrari. Unnið er áfram að frekari uppbyggingu og þróun á svæðinu, sem kallar á að heilbrigðisstarfsfólk hafi möguleikann í heimabyggð á að viðhalda þekkingu sinni og bæta við hana í takt við breyttar áherslur í starfi. Þetta undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að aðgengi að símenntun sé til staðar á svæðinu.
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) hefur brugðist við þessari þróun með markvissri símenntun fyrir sjúkraliða og annað heilbrigðisstarfsfólk. Áhersla hefur verið lögð á að bjóða hagnýta fræðslu í heimabyggð og þróa námsframboð í takt við þarfir og óskir fagfólks.
Til að tryggja að námsframboð taki mið af raunverulegum þörfum fagfólks sendi MSS út könnun í lok árs 2025 til sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga og annars fagfólks í heilbrigðisgeiranum á svæðinu. Niðurstöðurnar hafa nýst vel við skipulagningu námskeiða. Á vorönn 2026 voru haldin námskeiðin Sár og sárameðferð, Vímuefnaröskun eldri borgara og Bólgur og þarmaflóran. Þann 28. apríl síðastliðinn fór fram síðasta námskeið vorannar, Sýnatökunámskeið sem var mjög vel sótt og komust færri að en vildu. Á skömmum tíma hefur MSS komið fjórum af þeim fimm námskeiðum sem mest var kallað eftir í framkvæmd. Námskeiðin hafa almennt fengið afar góðar viðtökur og þátttakan sýnir skýrt þörfina fyrir aðgengilega símenntun í heimabyggð, ekki síst þegar um er að ræða verkleg og hagnýt námskeið.
Framhaldið lítur vel út, en nú þegar hefur verið opnað fyrir skráningu á nokkur námskeið á haustönn og námskeiðið Bráðahjálp fullorðinna fyrir sjúkraliða, sem flestir kölluðu eftir í könnuninni, verður opnað til skráningar innan skamms.
Kjarni málsins er sá að þegar símenntun er byggð upp í nánu sambandi við þarfir fagfólks á svæðinu verður námsframboðið bæði markvissara og aðgengilegra. Með þessu framtaki hefur MSS í samstarfi við heilbrigðisþjónustuaðila á Suðurnesjum, stuðlað að auknu aðgengi að símenntun í heimabyggð og tryggt að námsframboðið þróist og aukist áfram í takt við þarfir fagfólks á Suðurnesjum.
Hólmfríður Karlsdóttir, deildarstjóri hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
Jóhanna María Kristinsdóttir, verkefnastjóri hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum