
Undanfarnar vikur hefur starfsfólk MSS tekið þátt í fjölbreyttum fræðsluerindum sem miða að því að efla faglega þekkingu og þróa starfshætti til framtíðar. Eitt af þeim var fræðsla frá Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur, stofnanda HARTS, sem vinnur að því að þróa lausnir og veita ráðgjöf um aðgengilegt og inngildandi umhverfi fyrir skóla og vinnustaði.
Í erindinu fjallaði hún um hvernig hægt er að hanna og skipuleggja umhverfi sem tekur mið af ólíkum þörfum fólks – til dæmis einstaklinga með fjölbreyttan taugaþroska, ólíkan bakgrunn og mismunandi leiðir til að tileinka sér upplýsingar og taka þátt í námi eða starfi. Áhersla var lögð á að minnka hindranir, efla þátttöku og skapa aðstæður þar sem allir fá tækifæri til að njóta sín á eigin forsendum. Fræðslan beindist sérstaklega að fagfólki í menntun, félagsþjónustu og vinnustöðum þar sem unnið er með fjölbreyttum hópum, og gaf bæði hagnýt verkfæri og ný sjónarhorn á hvernig hægt er að vinna markvisst að aukinni inngildingu í daglegu starfi.
Við þökkum Jóhönnu kærlega fyrir innblásturinn og mikilvæga umræðu
Frekari upplýsingar er hægt að finna inn á www.harts.is