Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Finndu nám eða námskeið sem hentar þér

Kynntu þér námsframboð MSS eða pantaðu tíma í náms- og starfsráðgjöf og skoðaðu þína möguleika

Framundan hjá MSS

Skrifstofuskóli I

Skrifstofuskóli I

15. september 2026

Skrifstofuskóli I er námsleið fyrir þá sem sinna almennum skrifstofustörfum eða stefna á að starfa við skrifstofustörf. Tilgangur skrifstofuskólans er að auka hæfni námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og öðlast góða þekkingu og læra að færa bókhald.Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og starfsfærni. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem auðvelt er að yfirfæra á almenn skrifstofustörf.
Markmið námsins er að námsmaður:efli sjálfstraust sitt og öryggi til faglegra starfa á skrifstofuauki færni sína til að vinna störf á nútímaskrifstofuauki þjónustufærni sínanái valdi á tölvufærni sem krafist er við almenn skrifstofustörfauki námsfærni sínaNámsgreinar:VerslunarreikningurNámsdagbók og markmiðasetningÞjónustaGagnvirk samskiptiHandfært bókhaldSjálfstraustTölvubókhaldNámstækniFærnimappa og ferilsskráTölvu- og upplýsingatækni Námsmat:
Verkefnaskil, kannanir og virk þátttaka (símat).
Kennslufyrirkomulag:
Kennt er tvö síðdegi í viku, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 17:00 til 20:35 og annan hvern laugardag frá kl. 09:00 til 12:35. Kennt er samkvæmt námskrá sem er viðurkennd af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga og atvinnuleitendur geta leitað til VMST.
Ekki gleyma að kanna þinn rétt.
Nánari upplýsingar veita:
Díana Sól og Hólmfríður - skrifstofuskoli@mss.is  - sími 421-7500.  Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði – verð og upplýsingar eru birt með fyrirvara um breytingar á verðskrá Fræðslusjóðs.

Ummæli einstaklinga

Ég ákvað að fara í raunfærnimat vegna þess að ég þekkti manneskju sem hafði farið í svona mat. Síðan matið fór fram er ég búin að klára nám í matartækni frá MK. Ég fékk helling metið í raunfærnimatinu. Ég myndi segja við þann sem er að hugsa um að fara í svona mat að drífa sig því þetta er algjör snilld að eiga möguleika á því að ná sér í réttindi með svona auðveldum hætti.
Bryndís Rúnarsdóttir - þátttakandi í raunfærnimati

About

Um MSS

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum var stofnuð 10. desember 1997. Mikil fjölgun valkosta varð í menntunarmálum á Suðurnesjum við stofnun Miðstöðvarinnar. Þar með varð aðgengi almennings að námskeiðum meira og aukið svigrúm skapaðist til sí- og endurmenntunar. Á þeim árum sem Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum hefur verið starfrækt hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt og námsframboðið tekið mið af þörfum viðskiptavina hverju sinni.

Meginhlutverk Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum er að efla sí- og endurmenntun Suðurnesjamanna, auka menntun og lífgæði íbúa svæðisins og efla þannig einstaklinga og atvinnulíf.

Miðstöðin leggur metnað sinn í að veita ráðgjöf og persónulega þjónustu ásamt umhverfi til náms þar sem einstaklingum líður vel.

Póstlisti MSS

Með skráningu á póstlista MSS munu uppgefnar upplýsingar...